Matur í ferðaþjónustu framtíðarinnar

Hér er íslensk samantekt á tækifærum sem tengjast mat og matarmenningu í ferðaþjónustu framtíðarinnar. 

Matur i ferdathjonustu framtidarinnar

Átta Norðurlandaþjóðir standa að verkefninu Nordic Food in Tourism
sem er styrkt af norrænu ráðherranefndinni á tímabilinu 2019-
2021. Markmið verkefnisins er að kanna hvernig ferðamenn og aðrir
gestir tala um eða skynja norrænan mat, varpa ljósi á mikilvægi
staðbundinna matvæla í sjálfbærri ferðaþjónustu og öðlast innsýn
í hvernig loftslags-, neyslubreytingar og aðrir straumar geta mótað
framtíð matar í ferðaþjónustu. Tilgangurinn er að vekja athygli á
framtíðaráskorunum og tækifærum tengdum mat í ferðaþjónustu og
veita stefnumótandi leiðbeiningar sem styðja framtíðaraðgerðir og
stefnumótun á Norðurlöndunum sem samræmast einnig markmiðum
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Niðurstöður verkefnisins
byggja á greiningum gagna, aðferðum framtíðarfræða og viðtölum
við sérfræðinga í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Kairos Future.

Til að kanna hvaða áskoranir og tækifæri við stöndum frammi fyrir
hérlendis varðandi mat í ferðaþjónustu var haldinn kynningarfundur
og tvær vinnustofur í febrúar og mars 2021 undir stjórn verkefnisins
Nordic Food in Tourism, annars vegar með völdum sérfræðingum og
fulltrúum hagaðila (20 þátttakendur) og hins vegar opin vinnustofa
fyrir alla áhugasama (28 þátttakendur). Þátttakendur í báðum
vinnustofunum tengdust matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu á
mismunandi vegu s.s. komu frá fyrirtækjum, hagsmunasamtökum og
-félögum, markaðsstofum, háskólum, sveitafélögum og ráðuneytum.
Nordic Food in Tourism kom enn fremur að þremur lausnamótum
(e. hackathon), Hacking Hekla á Suðurlandi, Hacking Norðurland
og Hacking Hekla á Austurlandi þar sem unnið var að lausnum sem
stuðla að aukinni sjálfbærni og reyndist mikil áhersla lögð á tækifæri
tengd matvælum.

Margar tillögur að aðgerðum komu fram á vinnustofunum en óljóst
er í mörgum tilvikum hver á að draga vagninn og bera ábyrgð á því
að fylgja tillögum eftir. Lagðar voru fram tillögur að framkvæmdaog samstarfsaðilum aðgerða, en fleiri aðilar gætu þó komið að framkvæmd þeirra. Skjal þetta er samantekt sem endurspeglar
viðhorf þátttakenda í vinnustofunum og áherslur þátttakenda í
lausnamótunum.

Enn fremur fléttast að einhverju leyti við þessa
samantekt aðrar niðurstöður úr verkefninu Nordic Food in Tourism
ásamt öðrum heimildum með það að markmiði að dýpka skilning
á þeim umræðupunktum sem komu fram og þeim aðgerðum sem
eru lagðar til.

Þær aðgerðir og áherslur sem koma fram eru bundnar
við Ísland og þær áherslur sem þátttakendur vinnustofa hérlendis
vildu koma á framfæri. Markmiðið er að þessi samantekt verði nýtt
sem grunnur að tillögum að stefnumótun um mat í ferðaþjónustu
á Íslandi og gefi innblástur til frekari samstarfs, uppbyggingar,
fjárfestingar og nýsköpunar í mat í ferðaþjónustu með sjálfbærni að
leiðarljósi.

  • Share: